HeimAlþjóðlegur dagur líknarmeðferðar 8. október 2022UncategorizedAlþjóðlegur dagur líknarmeðferðar 8. október 2022

Alþjóðlegur dagur líknarmeðferðar 8. október 2022

Alþjóðlegur dagur líknarmeðferðar er haldinn ár hvert og í ár ber hann upp á laugardaginn 8. október. Markmið dagsins er að vekja athygli á líknarmeðferð og upplýsa um fyrir hvað hún stendur. Í líknarmeðferð er lögð áhersla á heildræna nálgun þar sem leitast er við að mæta líkamlegum, félagslegum, sálrænum sem og andlegum, trúarlegum og tilvistarlegum þörfum fólks. Líknarmeðferð snýr að því að bæta lífsgæði þrátt fyrir ólæknandi, lífsógnandi sjúkdóm. Um leið er áhersla á mikilvægi þess að alvarleg veikindi í fjölskyldu hafa áhrif á alla fjölskyldumeðlimi og því skiptir stuðningur við þau sem standa næst gríðarlega miklu máli.

Á hverju ári er á alþjóðlegum degi líknarmeðferðar sjónum beint að sérstökum viðfangsefnum sem ástæða er til að vekja athygli á. Í ár er yfirskriftin: Að græða hjörtu og samfélög. 

Minnt er á þá sammannlegu reynslu sem sorgin er og hvernig þörfin fyrir að græða sameinar fólk víðs vegar. Covid 19 heimsfaraldurinn olli yfir 6 milljónum dauðsfalla um allan heim. Gríðarlegt álag hefur verið á heilbrigðiskerfi þjóða og hefur faraldurinn orsakað bæði þjáningu og sorg. Einnig hafa stríðsátök gert það að verkum að milljónir fjölskyldna og umönnunaraðila syrgja fjölskyldumeðlimi og vini sem hafa farist, jafnframt því að upplifa félagslega einangrun og eignatjón.