HeimAlþjóðadagur líknarmeðferðar 11. októberUncategorizedAlþjóðadagur líknarmeðferðar 11. október

Alþjóðadagur líknarmeðferðar 11. október

Í dag 11. október 2025 er alþjóðlegur dagur líknarmeðferðar (World Hospice and Palliative Care Day) en hann hefur verið haldinn hátíðlegur annan laugardag októbermánaðar síðan 2005.
Í ár eru þannig 20 ár liðin frá því að ákveðið var að efna til slíks dags, þar sem tilefnið var að fagna og efla líknarmeðferð um allan heim.
Á ári hverju eru mismunandi viðfangsefni valin en í ár var ákveðið að fylgja eftir viðfangsefni ársins 2024. Þá var þess minnst að 10 ár voru liðin frá því að Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) samþykkti ályktun sem fól í sér ákall til allra þjóða um að styrkja líknarmeðferð sem hluta af alhliða/almennri heilbrigðisþjónustu. Þjóðir voru sömuleiðis hvattar til að skoða hvað hefði áunnist á þessum áratug.
Í ár er horft til framtíðar, til næstu 5-10 ára og lögð er áhersla á að kortleggja hvað þurfi að ávinnast til að tryggja aðgengi allra að góðri líknarþjónustu.
Vekjum að auki athygli á frekari fróðleiksmolum frá EAPC sem má nálgast með því að ýta á myndina.